Þegar ég mæli með ákveðnu mataræði og næringu, þá getið þið treyst því að það er mataræði sem vísindarannsóknir styðja. Í raun er ég ekki hrifin af neinum kúrum eða að útiloka eitthvað úr mataræði - en það gæti þurft að gera í einhverjum tilfellum.
T.d. eru sumir með óþol eða ofnæmi, þá er mjög mikilvægt að forðast þá fæðu. Einnig eru sumir sem borða ekkert sem kemur frá dýrum (vegan) og ég virði það 100% og þekki vel hvernig hægt er að borða vegan mat á sem heilbrigðastan hátt.
Ég er alls ekki hrifin af Ketó af mörgum ástæðum en það hefur samt sýnt sig að það geti hjálpað þeim sem hreyfa sig ekki mikið og þurfa að missa mörg kíló. Það getur því hentað í sumum tilfellum.
Mataræði er stundum eins og trúarbrögð - allir hafa skoðanir!
Ég reyni þó að byggja allar mínar skoðanir á rannsóknum og mun gera mitt allra besta að hjálpa ykkur að læra að þekkja hvað er gott fyrir ykkur.