Trainingpeaks er appið þar sem þú sérð æfingarnar. Í rauninni er það hannað fyrir þá sem stunda hlaup, hjólreiðar eða þríþraut en þeir hafa verið að bæta við styrktarþjálfun.
Þú getur bæði séð æfingarnar í tölvunni hjá þér og í appinu. Hlaupaæfingarnar fara beint í úrið þitt og þú getur fylgt æfingunum þar. Styrktaræfingarnar er best að sjá í appinu þegar þú ert að gera æfingarnar.
Ég mun byrja á því að senda þér tölvupóst um hvernig það virkar. Ef þú hefur ekki notað Trainingpeaks áður, þá þarft þú að skrá þig inn sem nýr notandi. Ef þú hefur notað það áður, þá þarf bara að tengja okkur saman.
Ef þú vilt alls ekki nota app - láttu mig vita. Við finnum aðra lausn.