
Einstaklingsmiðuð fjarþjálfun - þú æfir þar sem þér hentar, þegar þér hentar.
Þú færð aðgang að öllum æfingunum í Trainingpeaks.
Hvort sem þú ert algjör byrjandi eða búin að vera í ræktinni í mörg ár - þá er þjálfunun fyrir þig.
Þú færð sendan spurningalista strax eftir greiðslu. Þú svarar spurningunum eins vel og þú getur og sendir mér svörin á berglind@lifandilif.is.
Svörin við spurningunum gera mér auðveldara að búa til rétta æfingaplanið fyrir þig!
Fjarþjálfun - 4 vikur
Æfingaplan sem hentar þínum þörfum og markmiðum í fjórar vikur. Fjöldi æfinga á viku fer eftir þínum markmiðum.
Viltu léttast?
Viltu byggja upp vöðvamassa?
Viltu ná meiri árangri í ákveðinni íþrótt?
Ertu að eiga við eymsli eða meiðsli t.d. mjöðm eða ökklum?
Hvert sem markmiðið er - þú færð æfingaplan sem styður það.
Öll samskipti fara í gegnum tölvupóst. Í appinu hefur þú aðgang að myndböndum af öllum æfingunum og nána lýsingu.
Ef þú ert í einhverjum vafa t.d hvort þú sért að gera æfingarnar rétt, þá getur þú alltaf sent mér myndband af þér gera æfinguna og ég svara þér eins fljótt og ég get.
Æfingaplanið er algjörlega einstaklingsmiðað og hentar því öllum.
Ef þú ert algjör byrjandi þá byrjum við á að styrkja kviðvöðva og alla litlu vöðvana í kringum þá stóru. Þannig undirbúum við líkamann fyrir meiri átök. Lögð er einnig áhersla á jafnvægisæfingar og æfingar sem æfa samhæfingu og styrk.
Ef þú hefur einhverja reynslu þá skiptir máli hvert markmiðið er:
Ef þú vilt verða sterkari þá mun prógrammið snúast um þung lóð og fáar endurteknanir.
Ef þú vilt léttast en viðhalda/byggja upp vöðvamassa þá mun planið innihalda lyftingar ásamt þolæfingum (bæði Z2 æfingar og HIIT).
Ef þú vilt verða betri í ákveðinni íþrótt þá mun planið snúast um að styrkja/teygja á þeim vöðvum sem þarf til þess. Hér gæti ég beðið þig um að taka myndir af þér í ákveðnum stöðum til að sjá liðleika/styrk.
Þú getur algjörlega valið hvar þú æfir!
Ef þú æfir í ræktinni þá geri ég ráð fyrir að þú hafir aðgang að flestum tækjum. Ef einhver tæki eru í æfingunum sem þú hefur ekki aðgang að, þá lætur þú mig vita og ég passa að það verði ekki í fleiri æfingum.
Þú getur einnig valið að æfa heima. Þá verður þú að láta mig vita hvaða æfingatæki og lóð þú átt. Gott væri að vita hvaða þyngdir af lóðum/ketilbjöllum þú ættir líka.
Í rauninni þá er engin þörf á neinum tækjum og lóðum. En það er samt alltaf betra að eiga eitthvað. Þá hef ég meiri fjölbreytileika í æfingunum og þær verða einnig áhrifaríkari.
Hvað er gott að eiga fer svolítið eftir einstaklingum. Fyrir byrjanda þá er gott að eiga dýnu, teygjuhring, 2 x lóð sem hægt er að lyfta uppfyrir sig amk 10 sinnum og eitt (til tvö) þyngra lóð.
Þú ræður hvenær þú æfir.
Við ákveðum í sameiningu hversu oft þú æfir yfir vikuna. Það fer eftir markmiðum og hversu mikinn tíma þú gefur þér í æfingar. Þetta þarf að vera raunhæft og hjálpar engum ef við setjum of margar æfingar í vikuna sem þú síðan gerir ekki.
Í appinu verð ég búin að setja æfingarnar í dagatalið. Þú þarft ekki að æfa á þeim dögum og getur alltaf fært þær til. Þú getur einnig sagt mér hvenær þú vilt æfa og ég set þær á þá daga.
Trainingpeaks er appið þar sem þú sérð æfingarnar. Í rauninni er það hannað fyrir þá sem stunda hlaup, hjólreiðar eða þríþraut en þeir hafa verið að bæta við styrktarþjálfun.
Ég mun byrja á því að senda þér tölvupóst um hvernig það virkar. Ef þú hefur ekki notað Trainingpeaks áður, þá þarft þú að skrá þig inn sem nýr notandi. Ef þú hefur notað það áður, þá þarf bara að tengja okkur saman.
Ef þú vilt alls ekki nota app - láttu mig vita. Við finnum aðra lausn.