top of page

Grunnur að hollu mataræði: hvað eigum við að borða til að hámarka heilsu og minnka líkur á sjúkdómum?

Um námskeiðið

Við erum öll svo mismunandi með allskonar markmið. En það er sumt sem er sameiginlegt hjá okkur. Við viljum t.d. öll vera heilbrigð! Við viljum öll eiga langt og heilbrigt líf. Við viljum geta hreyft okkur og verið sjálfstæð þegar aldurinn færist yfir okkur. Við viljum hafa orku til að gera það sem okkur finnst skemmtilegt og hugsa um okkar nánustu. Við viljum næra hverja einustu frumu í líkamanum þannig að okkur líði sem best, bæði andlega og líkamlega. Við viljum vera hamingjusöm. Það geta verið margar ástæður af hverju við náum ekki þessum markmiðum. En grunnurinn er án efa hollt mataræði. Ef við borðum ekki hollt yfir heildina, þá verðum við aldrei heilbrigð. Hollt mataræði er nauðsynlegt til að lifa löngu og heilbrigðu lífi. Síðan eru margir aðrir þættir sem má bæta við það til að ná sem bestum árangri. Þá má nefna hreyfingu, streitustjórnun, svefn, félagslíf og margt fleira sem ekki verður farið í hér. í þessum smákúrs förum við í grunninn. Við skoðum næringu á einfaldan hátt og lærum hvers vegna við þurfum ákveðin næringarefni. Við lærum hvernig vítamín og steinefni hafa áhrif á líkamann og hvaða áhrif það hefur þegar okkur skortir það. Við lærum hvernig fitu við eigum að forðast og hvernig fitu við eigum að borða. Eru kolvetni góð fyrir okkur og hverskonar kolvetni ættum við að borða? Hvað eru góðir próteingjafar?

Yfirlit

Verð

15.000 kr.

Leiðbeinandi

bottom of page