Ertu að gleyma mikilvægasta hlutanum í þarmaheilsunni?
- Berglind Ósk Magnúsdóttir

- Jul 23
- 1 min read

Vissir þú að þarmaheilsa er eins og lítið gæðabakarí? 🥖👨🍳
Flestir þekkja Probiotics (góðgerla), en til þess að meltingin virki fullkomlega þurfum við að skilja alla keðjuna:
🌾 1. Prebiotics = Hráefnin
Þetta eru trefjarnar sem við getum ekki melt sjálf, en eru uppáhaldsmatur góðu bakteríanna (góðgerlanna). Þær melta ekki í maganum heldur ferðast beint niður í ristilinn þar sem góðu bakteríurnar nærast á þeim.
Hugsaðu um þetta sem hveitið og vatnið í bakaríinu.
Dæmi í okkar mataræði: Hafrar, bananar, laukur, hvítlaukur, epli, grænmeti, heilhveiti, bygg, aspas og fleiri trefjaríkar matvörur.
👨🍳 2. Probiotics = Bakararnir
Þetta eru lifandi, duglegu gerlarnir sem mæta á svæðið, taka hráefnin (trefjarnar) og byrja að vinna úr þeim.
Dæmi í okkar mataræði: Kefir, gæðajógúrt, skyr, kimchi og súrkál.
🥐 3. Postbiotics = Nýbakaða brauðið!
Þetta er lokavaran og sjálf ástæðan fyrir því að við mættum í bakaríið! Þegar bakteríurnar klára að borða trefjarnar, búa þær til dýrmætar aukaafurðir (vítamín, fitusýrur og amínósýrur). Það er þetta „brauð“ sem nærir þarmaveggina og styrkir ónæmiskerfið.
Dæmi í okkar mataræði: Ekta súrdeigsbrauð, íslenskt smjör og eplaedik.
Gullna reglan: 💡
Ef þú tekur bara inn gerla (bakarana) en gleymir að borða trefjar (hráefnin), þá verður ekkert til af postbiotics (brauðinu)! Allt ferlið þarf að vinna saman og því skiptir fjölbreytni í mataræðinu miklu máli.



Comments